Um veiðisafnið

Stofnað 2003

Ljón og zebrahestar, gíraffi, hreindýr, apar, selir, bjarndýr og sauðnaut eru hér ásamt fjölda annara dýra. Jafnframt eru hér til sýnis munir frá  Náttúrufræðistofnun Íslands sem Veiðisafnið hefur til sýningar samkvæmt sérstökum samningi.

Hér er einnig að finna skotfæraverkstæði þar sem sýnd eru tæki og tól til endurhleðslu skotfæra. Skotvopn og veiðitengdir munir frá landsþekktum veiðimönnum eru hér til sýnis og sérstaka athygli vekja Drífu haglabyssurnar frá Jóni Björnsyni heitnum frá Dalvík en á heimasíðu safnsins má finna upplýsingar um Drífuvinafélagið sem stofnað var 12.mars 2005. 

VErIÐ VELKOMIN

Okkur er það sönn ánægja að taka á móti þér og þínum, stórum sem litlum hópum, veiðiklúbbum, félögum, fjölskyldum og einstaklingum sem eiga leið hjá á auglýstum sýningartíma, eða vilja panta einkaheimsóknir, þar sem safnaleiðsögn er ítarlegri og tímasetningar ákveðnar fyrirfram.

Veiðisafnið á Stokkseyri var opnað 8.maí 2004 og er sjálfseignarstofnun skráð hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra. Veiðisafnið ses. kt.480104-2260


FRÆÐSLA

Uppsettning grunnsýningar safnsins er margrómuð en auk hennar eru settar upp sérsýningar og má þar nefna árlega byssusýningu og snertisafari – sýningu fyrir sjónskerta og blinda sem hefur verið haldin reglulega frá opnun safnsins. 

Hlutverk safnsins er m.a. að kynna komandi kynslóðum veiði og veiðirétt með aðaláherslu á náttúruvernd og skynsemisveiðar.

Sækja Söfnunar- og sýningarstefnu Veiðisafnsins

Eftirtalin fyrirtæki hafa styrkt Bygginga- og framkvæmdasjóð Veiðisafnsins